International students about NIH

 

Skólinn er staðsettur í litlu þorpi um það bil 20 mín norður af Álaborg. Aðstæður eru mjög góðar fyrir þær íþróttir sem í boði eru. Fyrsta vikan var mjög skemmtileg og þar var lagt kapp á að þjappa hópnum saman. Við fórum í allskonar misgáfulega leiki og allir skemmtu sér konunglega. Í skólanum vorum við fjórir íslendingar, öll frá sitthvoru landshorninu. Það var engu að síður mjög erfitt fyrstu vikurnar að skilja ekki neitt. Allir eru samt mjög hjálpsamir og skilningsríkir hvað það varðar. Fyrstu tvo mánuðina var ég í svokölluðum International bekk en þar eru nemendur allstaðar að úr heiminum. Í þeim bekk vorum við níu og þar er eingöngu töluð enska. Eftir um það bil tvo mánuði skipti ég yfir í tíma sem eingöngu var töluð danska. Þá hafði ég orðið ágætt vald á dönskunni. Þar eru einnig Norðmennirnir og líkt International bekkurinn eru þessir tímar þrisvar í viku. Þess á milli er æft af fullum krafti í allra handa íþróttum.

 

Önnin hér skiptist í tvö „period“ og valið er þrjá áfanga fyrir hvort. Á því fyrra valdi ég fótbolta, golf og Extreme. Ég var virkilega sáttur bæði með fótboltann og golfið, í báðum greinum var ég með bestu þjálfara sem ég hef haft. Golfvöllurinn hér er mjög góður og þjálfarinn hjálpaði mér mikið og ég sé sko ekki eftir því að hafa tekið golfsettið með mér út. Extreme áfanginn var aðeins öðruvísi en ég átti von á. Það eina sem víð gerðum í þeim áfanga var að fara í Go Kart, Paint ball og „Rib sejlads“ en þar áttum við að kasta okkur úr spýttbát í sjóinn. Síðan var einnig á dagskánni að fara í fallhlífastökk og paintball en því hefur alltaf verið frestað vegna veðurs. Á seinna tímabilinu hef ég haft handbolta, Adventure og Dans. Ég hef haft mjög gaman af öllum þessum fögum en það er erfitt að velja eitthvað eitt fag sem stendur upp úr.

Í byrjun september var farið til Chamonix í Frakklandi. Chamonix er lítill ferðamannbær við rætur Mont Blank. Við vorum einstaklega heppin með veður, það var 25 stiga hiti og heiðskýrt allan tímann. Þar vorum við í eina viku og myndaðist þar góður kjarni og mikil vinátta. Þar fórum við í river rafting, klettaklifur, fjallgöngu, jöklaferð, mountain bike túr og í ísklifur. Endað var svo á að halda fest í lok vikunnar. Þessi ferð var sennilega hápunktur verunnar hér.

 

Þessi tími hér í Danmörku hefur verið ótrúlega góður og ég gæti vel hugsað mér að koma aftur. Ég hef eignast marga mjög góða vini hér bæði Dani og Norðmenn. Kennararnir eru frábærir það er ekki annað hægt að segja. Mér hefur farið mikið fram í dönskunni og tala ég eingöngu dönsku hér. Auðvitað kemur fyrir að maður skilur ekki og þá biður maður þá bara um að tala aðeins hægar.

 
Hafsteinn B Gunnarsson
Hafsteinn B. Gunnarsson
2010.01.04
 
 
 
Bookmark and Share
Nordjyllands Idrætshøjskole :: Parkvej 61 :: DK-9700 Brønderslev :: Tel. 9882 5300 :: info@nih.dk